Hér er að finna upplýsingar um helstu gerðir burðarpoka og burðarsjala. Til eru ótalmargar gerðir og
ótalmörg merki og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Stutt yfirlit er gefið um hverja
tegund fyrir sig og nokkrar myndir. Neðst eru hlekkir á algengar tegundir og þar er hægt að finna
leiðbeinigar um notkun.
Asískir pokar
Mei Tais, Podaegis, Hmongs, og Onbuhimos. Af þessum eru Mei Tai þekktastir og vinsælastir. Mei Tai
eru uppruanlega kínveskir burðarpokar.
Mei Tai eru myndaðir úr rétthyrningi með böndum tengdum við hvert horn til að festa pokann
(sjá mynd). Böndin eru misbreið eftir merkjum og sum eru fóðruð og önnur ekki. Sumir Mei Tai koma
með hettu sem er hægt að nota sem aukastuðning þegar barnið sofnar (sérstaklega gott á bakinu).
Mei Tai er hægt að nota frá fæðingu og þar til barnið er orðið of þungt fyrir þann sem ber.
Mei Tai er hægt að framan og á baki og einnig á hlið. Barnið ætti helst að snú að þeim sem ber. Það
er þægilegra fyrir barnið og þann sem ber. Ef barnið vill hafa hendurnar frjálsar en nær enn ekki upp úr
pokanum þá má brjóta upp á neðri hlutan og stytta pokann.
Hægt er að gefa brjóst í Mei Tai. Þá þarf í flestum tilfellum að losa aðeins axalböndin og færa
höfuð barnsins í rétta hæð. Þá er gott að vera í sérstökum brjóstagjafabolum til að ekki þurfi að
lyfti allri fremi hlið bolsins upp.
Hér eru tvær myndir af Mei Tai í notkun. Á hægri myndinni er barnið rúmlega 4. vikna og með
fæturna inni í pokanum. Á vinstri myndinni eru barnið orðið 7 og hálfs mánaða.
Myndir og skýringar fyrir hinar gerðirnar koma síðar.
Sjöl
Sjöl eru ýmist úr teygjanlegu efni eða óteygjanlegu efni. Óteygjanlegu sjölin eru nefnd ofin sjöl.
Þau er annaðhvort rétthyrnd eða samsíðungslaga. Þau er hægt að fá í ýmsum lengdum, frá 2,7 metrum
upp í 5.7 metra. Það fer eftir því hvernig vafið er og hver stór sá sem ber barnið er hve langt
sjalið þarf að vera. Til viðmiðunar þá er sjalið á myndunum 4.1 metri. Stutt sjöl 2.7 metra og
styttri kallast rebozo.
Ofin sjöl er hægt að nota frá fæðingu og þangið til barnið er orðið of þungt fyrir þann sem ber.
Teygjanleg sjöl henta best fyrir ungabörn upp í 8 kg. Það er vel hægt að nota teygjanlegu sjölin
lengur en flestum finnst það ekki þægilegt. Hægt er að gefa brjóst í báðum gerðum af sjölum.
Ofnum sjölum er gjarnan skipt í tvö flokka, þýsk sjöl og önnur sjöl. Mörg þessara þýsku er aðeins
þykkari og gefa betri stuðning. Sjalið á myndunum er þýskt.
Ofin sjöl er hægt að nota að framan, á baki og á mjöðm. Teygjanleg sjöl eru aðalega notuð framan á.
Formaðir burðarpokar
Formaðir burðarpokar kallast á ensku soft structured carrires. Þessir pokar eru gjarnan með
fóðruðum axalólum og mittisbelti. Axalaólarnar tengjast við pokann sjálfan (sjá mynd). Á myndinni
lengst til vinstri er barnið að drekka.
Formaða poka má flesta nota að framan og á baki og sumar er hægt að nota á mjöðm líka
Hringasjöl
Hringajsöl eru rétthyrnd efni með tveimu hringjum festum í annan endann og hinum endanum þrætt í
gegnum hringina til að mynda poka eða sæti fyrir barnið. Auðvelt er að herða og losa sjalið með því
að færa til lausa endann í hringjum (sjá mynd). Hringasjöl er hægt að fá úr ýmsum efnum, t.d.
bómull, silki og hör. Hringasjöl geta verið fóðruð og ófóðruð á öxlunum og á hliðunum. Sjalið á
myndunum er ófóðrað.
Hringasjöl eru aðalega notuð að framan og á mjöðm en er hægt að nota á baki með eldri börn. Langflest
hringasjöl er hægt að nota á báðum öxlum en sum eru sérstaklega hönnuð bara fyrir aðra öxlina.
Skjóða (Pouch)
Pouch (ég ætla að kalla þá skjóðu á íslensku) er einfalt efni saumað í hring og brotið í tvennt
þannig að sæti myndast fyrir barnið. Þessa poka er hægt að nota alveg frá fæðingu en henta best
fyrir börn eldri en 4. mánaða. Stærðin á pouch skiptir miklu máli bæði fyrir þægindi og öryggi, hann
má alls ekkk vera of stór. Á myndinni er pouchinn aðeins og stór og þá má snúa upp á öxlina.
Hlekkir
Nokkrir hlekkir á vinsælar tegundir. Það eru til miklu miklu fleiri tegundir og þegar tími gefst
munu koma fleiri hlekkir.
Mei Tai
Babyhawk
Kozy carrier
Ofin sjöl
Didymos
Storchenwiege
Ellaroo
Teygjanleg sjöl
Moby wrap
Sleepy wrap
Formaðir pokar
Manduca
Ergo
Beco
Patapum
Calyx
Hringasjöl
Sleeping Baby Productions (SBP)
Sakura Bloom
Zolowear
Pouches
Hotslings
Þegar ég finn tíma þá mun ég breyta og bæta þessa síðu.